Jeans made with less, so you can love them even more.

Denim sjálfbærni

Made with less.

Ef við erum heiðarleg, þá hefur hefðbundin framleiðsla á gallabuxum mikil áhrif á plánetuna okkar. En með vandlega völdum efnum og bættri tækni, EIM (Environmental Impact Measurement), getum við framleitt gallabuxurnar sem þú elskar með minna vatni, efnum og orku en með hefðbundnum aðferðum. Svo þú getur elskað þær enn meira.

Less bad stuff.

Efnisvalið í gallabuxunum okkar er mikilvægt og þess vegna notum við ekkert annað en vottaðan lífrænan bómull, bómull sem er keyptur í gegnum Better Cotton samtökin eða vottað endurunnið efni

Less energy.

Framleiðsla á denim-textíl notar yfirleitt mikla orku. Við viljum breyta því með snjallari framleiðslu sem krefst minni auðlinda.Við höfum hætt að nota hefðbundinn bómull og þvottaferlið okkar notar næstum 30 prósent minni orku.

Less chemicals.

Þegar bómull er aflitaður, litaður og þveginn eru notuð efni. Þau hafa mikil áhrif á umhverfið. Þegar þú velur gallabuxur frá okkur veistu að þær eru framleiddar samkvæmt ströngum takmörkunum á notkun efna, þannig að engin hættuleg efni séu í fötunum sem þú kaupir. Við könnum einnig að þeir sem framleiða fötin okkar starfi í öruggu umhverfi og að verksmiðjurnar hreinsi hugsanlegt frárennsli. Auk þess hefur minna magn efna verið notað við bómullarræktun og þvott á denimefni en við framleiðslu hefðbundinna gallabuxna.

Less water.

Fyrir eitt einasta par af gallabuxum getur þurft allt að 11.000 lítra af vatni! Þessu viljum við breyta. Bómull er vatnsfrek planta og hefðbundin ræktun krefst mikillar áveitu. Við höfum alfarið hætt að nota hefðbundin bómull og notum eingöngu vottaðan lífrænan bómull, bómull sem keypt er í gegnum Better Cotton-samtökin, eða vottuð endurunnin efni til að draga úr vatnsnotkun. Með snjallari þvottaferlum við þvott á flíkunum spörum við að minnsta kosti 40% vatn miðað við hefðbundinn þvott á denimefni.

Made for more.

Vissir þú að þú getur helmingað loftslagsáhrif gallabuxnanna þinna með því að nota þær tvöfalt meira? Gallabuxur eru líka tímalaus og árstíðalaus hetja í fataskápnum sem fer aldrei úr tísku og verður bara flottari og þægilegri eftir því sem þú notar þær meira. Gefðu þér smá tíma til að prófa þig vel áfram og finna uppáhaldsgallabuxur sem þú munt elska lengi. Skoðaðu endilega denimleiðbeiningarnar okkar, þar hjálpum við þér að finna hið fullkomna snið, svo þú getir elskað þær enn meira. Í barnaúrvalinu okkar erum við auk þess með sérstaklega slitsterkar gallabuxur styrktar með Cordura®, sem leyfa leiknum að endast lengur. Finndu gallabuxur sem henta sérstaklega vel í leik.

Uppgötvaðu rekjanleika

Rekjanleiki — gagnsætt ferðalag í átt að meðvitaðri vali.

Á bak við hvert par af gallabuxum liggur mikil vinna, orka og hráefni. Framleiðsluferlið er flókið og felur í sér vinnu margra einstaklinga. Með rekjanleika leggjum við okkur fram um að bjóða tísku á eins gagnsæjan og ábyrgan hátt og mögulegt er.

Til að tryggja að við störfum með ábyrgum birgjum sem framleiða gallabuxurnar okkar, allt frá bómullartrefjum til fullunninnar flíkur, notum við rekjanleikakerfið TrusTrace. Það gerir áhættur sýnilegar, mælir framfarir og hjálpar okkur að finna bestu valkostina til að tryggja góð vinnuskilyrði og lágmarka neikvæð umhverfisáhrif framleiðslunnar. Rekjanleiki gerir það að verkum að þú sem viðskiptavinur getur verið öruggur um hvernig gallabuxurnar okkar hafa verið framleiddar.

Við trúum því að þekking og vitund séu lykillinn að breytingum. Þess vegna viljum við hvetja til innihaldsríkara sambands við fötin okkar. Þegar þú sérð og skilur vinnuna sem liggur að baki gallabuxunum þínum muntu elska þær og hugsa enn betur um þær.


Markmið ferðalagsins — fullur rekjanleiki.

  • Við vinnum til lengri tíma með rekjanleika til að vita hvaðan efnin okkar koma. Markmið okkar er að eigi síðar en í lok árs 2026 verði 100% af úrvali okkar með aðalefni sem hægt er að rekja niður á trefjastig; fyrir gallabuxur þýðir það bómullartrefjarnar.
  • Vinnan er þegar hafin. Haustið 2023 var allt gallabuxnaúrvalið okkar fyrsta skrefið á ferðalagi okkar í átt að fullum rekjanleika allra vara.

Svona virkar rekjanleiki.

Hvert stig í framleiðsluferli gallabuxna er kortlagt í fjórum mismunandi „tiers“, eða stigum. Þar sérðu meðal annars hjá hvaða birgi og í hvaða landi hvert ferli var framkvæmt við gerð gallabuxnanna.

Myndir frá Pratibha-bóndabænum í Karhi, Khargone-héraði, Madhya Pradesh, Indlandi.

Tier 4

Ferðalag gallabuxnanna hefst hjá birgja hráefnisins, í þessu tilfelli bómullartrefja. Þar er bómullin ræktuð sem verður að bómullartrefjum og afhent spinniverksmiðjunni, það er garnbirgjanum.

Myndir frá birgjanum Pratibha Syntex Ltd., frá framleiðslueiningunni okkar í Pithampur, Dhar-héraði, Madhya Pradesh, Indlandi.

Tier 3

Hjá garnbirgjanum er bómullartrefjum spunnið í garnið sem þarf til að framleiða denimefnið. Það er síðan afhent efnisbirgjanum.

Myndir frá birgjanum Soorty Enterprise Pvt. Ltd., borg: Karachi, fylki: Sindh, land: Pakistan.

Tier 2

Efnisbirgirinn vefur garnið í denimefni og litar það. Síðan fer efnið áfram til birgisins sem saumar gallabuxurnar.

Myndir frá birgjanum Meghna Denims Ltd., borg: Gazipur, umdæmi: Dhaka, land: Bangladess.

Tier 1

Þetta er lokaskrefið í ferðalagi gallabuxnanna þar til þær verða að fullkomnu gallabuxnapari. Hér fer öll sniðskurður og saumaskapur fram. Hér eru gallabuxurnar einnig þvegnar og meðhöndlaðar með ýmsum ferlum til að fá sitt sérstaka útlit. Við notum oft lasermeðhöndlun, þar sem hægt er að líkja eftir náttúrulegri upplitun og sliti án þess að nota vatn eða efni.

Hugsaðu vel um gallabuxurnar þínar.

Svona hugsar þú vel um gallabuxurnar þínar.

Gallabuxur þarf ekki að þvo sérstaklega oft; það nægir að viðra þær eftir þörfum og fjarlægja einstaka bletti. Skoðaðu þvottaleiðbeiningarnar í gallabuxunum þegar kemur að því að þvo þær.

Hér eru ráðin okkar til að láta uppáhaldsgallabuxurnar þínar endast lengi:

  • Tæmdu alla vasa, renndu upp klaufinni og snúðu þeim á rönguna. Þannig helst liturinn betur.
  • Vertu fljót/ur að blettahreinsa einstaka bletti. Smá gallsápa eða blettahreinsir getur gert kraftaverk.
  • Veldu milda þvottastillingu. Það er gott bæði fyrir gallabuxurnar þínar og orkunotkunina.
  • Slepptu mýkingarefni og notaðu þvottaefni fyrir litaðan þvott; það er langmildast fyrir fötin.
  • Forðastu að setja gallabuxurnar í þurrkara! Hengdu þær til þerris á þvottasnúru eða á grind.
  • Gallabuxur þarf ekki að strauja, en létt gufuútjöfnun getur bæði frískað þær upp og slétt úr krumpuðum buxum.