Algengar spurningar
Hvernig eru skilareglur Kappahl?
Við bjóðum viðskiptavinum okkar 30 daga skilarétt og 14 daga endurgreiðslu gegn framvísun kassakvittunar. Vörur þurfa að vera ónotaðar og í upprunalegu ástandi við skil. Allir verðmiðar og pakkningar sem fylgja vörum þurfa einnig að vera í upprunalegu ástandi. Nærbuxum, sundbuxum, eyrnalokkum og snyrtivörum fæst hvorki skipt né skilað nema innsigli sé til staðar.
Ef hætt er við pöntun innan 14 daga frá möttöku hennar fæst full endurgreiðsla. Ef vörur, sem hætt hefur verið við, eru sendar til baka með pósti greiðir viðskiptavinur tilheyrandi sendingarkostnað. Alltaf er hægt að skila beint til okkar á lagerinn eða í verslanir án viðbótarkostnaðar.
Ekki er hægt að skila né skipta útsöluvörum.
Hvað gilda inneignarnótur lengi?
Inneignarnótur sem Kappahl gefur út gilda í 3 ár frá útgáfudegi. Kappahl ber ekki ábyrgð á inneignarnótum sem týnast eða skemmast.
Er hægt að kaupa gjafabréf hjá okkur?
Já, við seljum gjafabréf bæði í verslunum okkar og hér í netverslun. Gjafabréf sem keypt eru í verslun gilda aðeins í verslun og þau sem eru keypt í netverslun gilda aðeins í netverslun.
Er mögulegt að breyta eða hætta við pöntun eftir að hún hefur verið gerð?
Nei, því miður. Þegar pöntunin þín hefur verið skráð og flutt inn í kerfið okkar er ekki hægt að gera breytingar eða hætta við pöntunina. Hins vegar er þér alltaf velkomið að skila pöntuninni til okkar.
Er mögulegt að breyta um afhendingarstað eftir að pöntun hefur verið gerð?
Því miður þá getum við ekki breytt pöntun á nokkurn hátt eftir að hún hefur verið skráð. Þetta felur í sér breytingar á afhendingarmáta og greiðslumöguleikum.
Ég hef ekki fengið staðfestingu á pöntun
Um leið og pöntun hefur verið gerð færðu staðfestingu á henni í pósthólfið þitt. Stundum lenda þessir tölvupóstar í ruslmöppu og biðjum við þig um að athuga þangað áður en þú hefur samband við okkur.
Það vantar vöru í pöntunina mína
Þegar pöntun er gerð er rukkað fyrir allar vörurnar í pöntuninni. Birgðakerfið okkar á það einstaka sinnum til að birta vörur sem ekki eru til. Í þeim tilfellum er varan endurgreidd. Við sendum tölvupóst um leið og við sjáum að varan sé ekki til. Ef borgað er með korti þá getur endurgreiðslan tekið allt að 6 virka daga.
Hversu gamall/gömul þarf ég að vera til að panta hjá Kappahl?
Þú þarft að hafa náð 16 ára aldri
Hver er afhendingartími Kappahl?
Kappahl afgreiðir pantanir eins fljótt og auðið er. Afhendingartími sem er gefinn upp er 2-3 virkir dagar.
Er hægt að rekja pöntun?
Aðeins er hægt að rekja pantanir sem sendar eru með Dropp eða Póstinum
Má einhver annar en ég sækja pakkann?
Ef þú vilt að einhver annar sæki pakkann þar sem þú kemst ekki til að sækja hann máttu hafa samband á netverslun@kappahl.is
Endurgreiðið þið sendingarkostnað?
Kjósi neytandi að skila vöru sem ekki er gölluð þá ber honum að greiða tilheyrandi sendingarkostnað sjálfur. Alltaf er hægt að koma með og skila vörum á lagerinn okkar án viðbótarkostnaðar. Ef í ljós kemur að þú hefur fengið ranga eða gallaða vöru senda greiðum við sendingarkostnað.
Klúbburinn
Hvernig gerist ég meðlimur í Kappahl klúbbnum?
Þú getur skráð þig í klúbbinn hér eða í öllum Kappahl og Newbie verslunum á Íslandi.
Hvernig virka punktar og inneignir?
Þú færð punkta af öllu sem þú verslar (1 kr = 1 punktur). Punktar gilda í 12 mánuði og þegar þú hefur unnið þér inn 10.000 punkta breytast punktar í inneign. Fyrir hverja 10.000 punkta færðu 250 kr í inneign. Inneignir eru reiknaðar einu sinni í mánuði.
Hvernig get ég nýtt mér inneignina?
Þú getur nýtt inneignir í verslunum Kappahl og Newbie á Íslandi. ATH. Ekki er hægt að nýta inneign í netverslunum.
